|
Leikskólinn tók til starfa 12. september 1986, í 13. ár var hann rekinn af Borgarspítalanum seinna Landspítalinn í Fossvogi og eingöngu ætlað börnum starfsmanna sjúkrahússins. Um haustið 1999 hætti sjúkrahúsið rekstrinum og Leikskólar Reykjavíkur tóku yfir reksturinn, tveimur árum eftir það var byggt við leikskólann, bætt við einni deild, eldhúsi og betri aðstöðu fyrir starfsfólk. Furuborg er þriggja deilda leikskóli með 66 heilsdagsrými. Starfsmenn eru að jafnaði 13-15, stöðugildi. Nánasta umhverfi Furuborgar er mjög fjölbreytt. Leikvöllurinn er í nokkrum halla á móti suðri og er gróðursæld þar mikil og útsýni gott. Í næsta nágrenni er Fossvogsdalurinn, skógræktin og fleiri staðir sem börnin kunna vel að meta að heimsækja.
|