Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 15 febrúar 2010 10:17

Sælir kæru foreldrar.

Það gengur vel hjá okkur á Grenilundi þessa dagana, við erum að æfa nokkur ný lög og læra nýja þulu.

Lögin sem við erum að æfa heita Bolludagur, Sprengidagur og Öskudagur og fjalla um bræðurna þrjá.

Við munum einnig fagna þessum dögum með viðeigandi hætti, bollum á Bolludag, saltkjöt og baunir á Sprengidag og Öskudagsball á Öskudag þar sem börnin mega mæta í grímubúningum/furðufötum.

Þulan sem við erum að leggja inn hjá börnunum heitir Fagur fiskur í sjó, sem þið kunnið örugglega öll.

Hópastarfið gengur vel og eru börnin áhugasöm við verkefni sín. Í lok febrúar/byrjun mars munum við hefja foreldraviðtölin og verða foreldrar boðaðir í þau þegar nær dregur.

Kveðja Grenilundarkonur.

 

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Furuborg | Álandi | 108 Reykjavík | Sími: 553-1834 | Póstur | Viðburðir | Fréttir