Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir

Hér að neðan má sjá algengar spurningar og upplýsingar um ýmislegt sem við kemur leikskólanum og starfsemi hans.



Klæðnaður barnanna Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Í hólfum barnanna skal vera sá fatnaður sem þau þurfa dagsdaglega.
Á veturna þarf að vera þykk peysa, ullarsokkar, þrennir vettlingar, kuldagalli, húfa/lambhúshetta, kuldaskó/loðfóðruð stígvél.
Eftir veðri þarf að auki að vera regngalli og vindföt.
Í körfum fyrir ofan hólf barnanna skal vera eitt sett af aukafötum á barnið.
Gott að hafa í huga, að barnið sé í fatnaði sem það ræður við að afklæðast, t.d. við salernisferðir.
Munið að merkja fatnað barnanna....

 
Veikindi barna Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

sicksmileyface2

Leikskólinn er ætlaður frískum börnum og gert er ráð fyrir því að þau taki þátt í starfi leikskólans úti sem inni. Þess vegna getum við ekki tekið á móti veiku barni, og ekki boðið upp á inniveru. Ef barn veikist og fær hita, þarf það að dvelja heima þar til það hefur verið hitalaust í 1-2 sólarhringa. Fái barn smitandi sjúkdóm verður það að dvelja heima þar til smithætta er liðin hjá. Þetta er nauðsynleg ráðstöfun til að forðast útbreiðslu sjúkdóma í leikskólanum og sjálfsögð tillitsemi við önnur börn. Ef barn veikist í skólanum er hringt í foreldra, því er mjög mikilvægt að við höfum rétt símanúmer.

 
Afmæli Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
afmaeliBörnin mega halda upp á afmælið sitt , og bjóða deildinni sinni upp á veitingar. Æskilegt að bjóða aðeins upp á eina tegund þ.e. ef komið er með köku er ekki líka komið með ís.

 

Lesa meira...
 
Lyfjagjöf á leikskólatíma Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
pillaBörnum er ekki gefið lyf í leikskólanum, nema um bráðatilfelli er um að ræða svo sem asmi, eða lífshættulegt ofnæmi.
 
Slys á börnum Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

fyrsta_hjalp Ef barn slasast í skólanum höfum við tafarlaust samband við foreldra og bregðumst við hverju tilfelli eftir bestu vitund. Ef um alvarlegt slys er að ræða, er hringt á sjúkrabíl og mun áfallateymi slysadeildarinnar hafa samband við foreldra.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 2

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Furuborg | Álandi | 108 Reykjavík | Sími: 553-1834 | Póstur | Viðburðir | Fréttir