|
Hér að neðan má finna ýmsar útskýringar á því starfi sem fram fer í leikskólanum.
|
|
LEIKUR ER LÍFSTJÁNING BARNA
Leikur inniheldur þroska, nám menningu og reynslu.
° Leikur er sérkenni bernskunnar. Þar sem börn eru samankomin er leikurinn aðalatriðið.
° Leikur hefur félagslegan uppruna og eykur félagsþroska barna og er forsenda þess að geta leikið við aðra.
° Leikur auðveldar börnum samskipti, þau læra leikreglur og jafnræði ríkir á milli félaga.
° Leikur örvar samskipti og samspil við fullorðna, foreldrar hjala og leika við börn sín með svipbrigðum, látbragði, rödd og hreyfingu
° Leikur losar athafnir úr venjulegi samhengi og leikur gerir barninu kleift að rifja ýmislegt upp, prófa aftur og æfa án mikillar áhættu
° Leikur hjálpar öruggu barni áleiðis í þroska og leikur heldur stjórnsömu barni innan ákveðins ramma.
° Leikur er ferli sem speglar allt mannlegt líf og leysir tilfinningar úr læðingi, ótta, gleði og sorg.
° Leikur mistekst aldrei.
|
|
|
Í aðalnámskrá leikskóla er lögð áheyrsla á að efla lífsleikni meðal leikskólabarna. Í leikskóla er mikilvægt að efla lífsleikni barna með því að rækta alla þroskaþætti þeirra, dygð er siðferðislegur grunnur einstaklingsins. Persónueiginleiki hvers og eins er samsettur úr góðum siðum /dygðum og ósiðum/löstum. Það fer svo eftir því hvernig einstaklingurinn bregst við þegar á reynir hvort verður ofan á.
Dygðavísar eru sendir heim með börnunum í upphafi hverrar dygðar.
Dygðirnar eru:
Kurteisi
Vinsemd
Glaðværð
Hjálpsemi
|
|
Hvað er tákn með tali - TMT ?
Tákn með tali er tjáningarform, ætlað heyrandi fólki sem á við mál- og talörðuleika að stríða. Það byggist á sambandi af látbrigðum, táknum og tali. Með látbrigðum er átt við látbragð og svipbrigði sem yfirleitt eru sýnd um leið og táknin eru gerð og undirstrika þannig merkingu þeirra.
Táknin í TMT geta bæði verið myndræn og lýsandi. Með því að nota þau samhliða tali eru orðin gerð " sýnileg" en margir sem nota TMT eiga auðveldara með að læra og tileinka sér ný hugtök með sjónrænum stuðningi.
TMT er skemmtilegt og gefandi fyrir öll börn en ekki bara þau sem þurfa sérstaklega á því ð halda. Börnum finnst einstaklega gaman að syngja með táknum.
|
|
|
Dagskipulag sjá hér dagskipulag |
|
Í skipulögðum leikjahópum gefst starfsfólki kostur á að fylgjast með samskiptum og þroska barnanna.
Börnunum er skipt í hópa eftir aldri og þroska og vinnan er miðuð við hvern aldurshóp. Verkefnin í hópavinnu eru:myndmennt, tónmennt, hreyfing, byggingaleikir, vatnsleikir og hlutverkaleikir. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 2 |